Textílefni
Um vefinn
Hér er að finna upplýsingar um textílefni, sögu þeirra, einkenni, þvottaleiðbeiningar og fleira tengt textíltrefjum. Markmiðið er að hafa hér upplýsingar um textílefni á einum stað til að auðvelt sé að lesa sér til um efnin. Vefurinn
er hugsaður fyrir kennara, nemendur í textíl og almenning, þá sem ætla sér að nota textílefni á einhvern hátt. Gott getur verið að skoða eiginleika hvers efnis áður en farið er að hanna eða kaupa í flík. Vefurinn er einnig gerður fyrir síma svo auðvelt er að skoða hann hvar sem er.
Vefurinn er hluti af lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands árið 2016. Umfjöllun um textílefni byggir að töluverðu leiti á hand- og kennslubókinni Clothing Technology eftir Moll, Menzer, Eberle, Hermeling, Hornberger, Kilgus, Kupke og Ring. Myndefni er úr ýmsum áttum.
Með von um að vefurinn muni nýtast sem flestum.
Íris Sverrisdóttir